Fara beint í spjallið

Efnisflokkur

Íslenskt mál og málfar

Íslenskan er beygingamál og þess vegna klikka flest gervigreindarforrit á henni: þau skila enskri setningagerð í íslenskum orðum. Hafdís er þjálfuð á íslensku málfari og skilar beygingum, föllum og orðaröð eins og þær eiga að vera.

Hér eru sniðmátin fyrir daglega málnotkun: yfirlestur á texta, beygingartöflur fyrir nöfn og orð, þýðing sem hljómar ekki eins og þýðing, og skýring á þágufallssýki, ð/d-villum og öðru sem íslenskir textar hrasa á.

Hvert sniðmát er fullbúin fyrirspurn. Smelltu á það og svarið kemur strax — engin skráning, engin greiðsla.

Spyrja Hafdísi núna

5 tilbúnar fyrirspurnir í þessum flokki

Hver þeirra er fullbúin íslensk fyrirspurn. Smelltu á hana á forsíðunni og svarið kemur strax — eða lestu hana hér og orðaðu þína eigin útgáfu.

  1. Laga málfarið

    Yfirlestur með skýringu á hverri einustu breytingu.

    Ég lími hér inn texta á íslensku. Lestu hann yfir og leiðréttu stafsetningu, greinarmerki, beygingar, þágufallssýki og klaufalegar þýðingar úr ensku — skilaðu hreinni útgáfu fyrst. Settu síðan töflu með hverri breytingu: upphaflegt orðalag, leiðrétt orðalag og ástæðan. Endaðu á þremur atriðum í stílnum mínum sem ég ætti að temja mér til framtíðar.

    prófarkalesturvilluleitleiðrétta textastafsetning

  2. Beygingar og nöfn

    Öll fjögur föllin rétt, í hvert einasta skipti.

    Ég gef þér nafn eða orð og þú beygir það í öllum fjórum föllum, eintölu og fleirtölu, með greini og án, í skýrri töflu. Segðu hvaða beygingarflokki orðið tilheyrir og hvaða villur fólk gerir oftast með það. Ef um ættarnafn eða erlent nafn er að ræða, skýrðu hvernig það fer best í íslensku samhengi, hvernig eignarfallið er skrifað og hvað Mannanafnaskrá segir um það.

    fallbeygingeignarfallmannanafnaskránefnifall þolfall þágufall

  3. Þýða á alvöru íslensku

    Ekki þýðingarvél — texti sem hljómar íslenskur.

    Þýddu textann sem ég lími inn á vandaða íslensku. Ekki þýða orð fyrir orð: umorðaðu setningagerðina svo hún verði íslensk, notaðu íslensk orð yfir tökuorð þar sem góð orð eru til, og haltu tóni frumtextans. Skilaðu þýðingunni fyrst. Settu svo lista yfir þau fimm orð eða orðasambönd sem voru erfiðust, hvað þú valdir og hvaða aðrir kostir komu til greina.

    þýðingenska á íslenskuþýða textanýyrði

  4. Hvort er réttara?

    Málfarsúrskurður með rökum og dæmum.

    Ég spyr um málfarsatriði — hvort tveggja orðalag sé réttara, hvort orð sé til, eða hvernig eitthvað eigi að beygjast. Svaraðu skýrt: hvað er rétt mál, hvað er umborið í daglegu tali og hvað telst villa. Rökstyddu út frá málvenju og uppruna, gefðu þrjú dæmi um rétta notkun í heilum setningum, og segðu hvort Málfarsbankinn eða Íslensk nútímamálsorðabók hafi um þetta að segja.

    málfarsbankinnréttrituner þetta rétt íslenska

  5. Orðaforði og orðatiltæki

    Íslensk orðatiltæki skýrð með uppruna og notkun.

    Kenndu mér tíu íslensk orðatiltæki eða málshætti um efnið sem ég nefni. Fyrir hvert: merking á mannamáli, uppruni ef hann er þekktur, og ein heil setning sem sýnir rétta notkun í nútímasamhengi. Merktu sérstaklega þau sem fólk misnotar eða ruglar saman við annað. Endaðu á þremur orðatiltækjum sem eru að hverfa úr málinu og hvað kom í staðinn.

    orðatiltækimálshættirorðaforðiíslensk orð

Aðrir efnisflokkar